Dahua
Öryggismyndavélakerfi til Leigu - 4 Dahua öryggismyndavélar.
Öryggismyndavélakerfi til Leigu - 4 Dahua öryggismyndavélar.
Couldn't load pickup availability
Kynnum samsett Dahua öryggismyndavélakerfi, klárt til uppsetningar og notkunnar.
Þetta kerfi má Leigja á föstu mánaðarlegu gjaldi.
Öryggismyndavélakerfið verður uppsett og allar myndavélar tengdar við kerfið við afhendingu, harður diskur komin í myndþjón og upptaka öryggismyndavéla forstillt.
Kerfið virkar eins á venjulegri internet tengingu og á 4/5G router.
Þetta er vírað kerfi og leigandi leggur Cat tölvustreng frá myndþjóni og að hverri öryggismyndavél.
Upptökugeta myndþjóns er 6TB, harður diskur fylgir með,
það þýðir um 30 daga upptaka fyrir hverja af 4 öryggismyndavélum.
Upptökutími getur breyst í báðar áttir eftir aðstæðum á hverjum stað.
Stærri harður diskur er í boði ef þörf er á lengri upptökutíma.
Öryggismyndavélar taka upp við hreyfingu, ef mikil umferð er á vöktuðu svæði getur upptökutími styst, ef lítil hreyfing er getur upptökutími lengst.
Fulltrúar okkar geta aðstoðað við lagnavinnu smáspennu líkt og Cat strengja.
Verð með vsk.
Share



